vikarar84.bloggar.is
Allt dautt á miđunum??Víkarar
Stundum gleymir maður hlutverkinu sínu.. þannig er það bara..En ég ætlaði mér bara að stofna þessa síðu og "hætta" svo því ég ætla ekki að sjá um skipulagninguna á þessum degi okkar, getum við ekki farið að negla það niður hver eða hverjir/hverjar ætlar að sjá um þetta og hann/hún/þeir/þær/þau fá svo einhverja aðstoðarskipulagningameistara með sér? Það hlýtur einhver að vilja sjá um þetta, það segir sig sjálf að þetta fellur uppfyrir ef enginn tekur þetta að sér.
Ég veit að það er bara febrúar en tíminn líður og klukkan tifar mjög hratt..
Komum þessu á hreint svo sumarið líði ekki án þessa dags..:)
Kv. Inga Lára
Athugasemdir
2
Inga Lára skrifar:
Já ég er alveg sammála því að það þyrftu að vera 3-4 að skipuleggja þetta, en ég tel samt sem áður að það þurfi að vera einn "stjórnandi" sem hefur heildar yfirsýn yfir þetta:)
13. febrúar 2008 klukkan 22:56
3
Aron skrifar:
Jebb, ég held að það sé líka best að sá sem stjórni þessu sé fyrir vestan. Það er erfitt að skipuleggja þetta héðan úr bænum. Annars væri ég búinn að taka þetta að mér.
18. febrúar 2008 klukkan 14:58
4
Sigurbjörg skrifar:
Það búa nú fleiri fyrir sunnan svo það er alveg tilvalið að þið takið þetta að ykkur;) En hvað um það þá get ég svo sem alveg tekið á skarið og boðið mig fram fyrst, þar sem allir eru svona æstir í þetta hlutverk:D En það verður þá einhver fyrir vestan að vera tilbúinn til þess að aðstoða mig, nema við rumpum þessu af eina helgi fyrir sunnan? Hvað haldið þið?
20. febrúar 2008 klukkan 10:22
5
Inga Lára skrifar:
Já þarna þekki ég ykkur, líst vel á að klára þetta bara á einni helgi:)
Þá er þetta bara búið og frá:)
Þá er þetta bara búið og frá:)
20. febrúar 2008 klukkan 22:18
6
Birgitta skrifar:
Ég er game... just let me know
22. febrúar 2008 klukkan 10:37
7
Birgitta Elín skrifar:
Hæhæ,
Var bara að kíkja á síðuna og sé að hér er svaka skipulag :P hehe Gott ef það eru e-h með hugmyndir í pokahorninu. Er e-h í bígerð. það þarf nú ekki mikið, velja 1 dag eða helgi, slá niður daginn með góðum fyrirvara þeir sem komast koma og aðrir reyna að redda sér fríi. svo bara tjalda, grilla og slá þessu uppí kósí parý :) Það verður að framkvæma ekki bara hugsa um hlutina ;)
Var bara að kíkja á síðuna og sé að hér er svaka skipulag :P hehe Gott ef það eru e-h með hugmyndir í pokahorninu. Er e-h í bígerð. það þarf nú ekki mikið, velja 1 dag eða helgi, slá niður daginn með góðum fyrirvara þeir sem komast koma og aðrir reyna að redda sér fríi. svo bara tjalda, grilla og slá þessu uppí kósí parý :) Það verður að framkvæma ekki bara hugsa um hlutina ;)
24. febrúar 2008 klukkan 23:01
8
Svala skrifar:
Ég get nú kannski verið með í e-u planeríi! Bara hóa í mig :)
04. mars 2008 klukkan 23:57
9
Aron Örn skrifar:
Ég segi bara að við tökum sjómannadagshelgina. Svala reddar félagsheimili hestamanna fyrir föstudagskvöldið og Biggi reddar kjallaranum fyrir laugardagskvöldið. Þegar þetta er klappað og klárt getum við farið að ræða dagskrá. Einnig þarf að ákveða með áfengi og mat og þannig.
En ég held allavega að best sé að byrja á að redda kjallaranum og hestamannahúsinu. Það er að segja ef að fólk samþykkir að vera á þessum stöðum.
En ég held allavega að best sé að byrja á að redda kjallaranum og hestamannahúsinu. Það er að segja ef að fólk samþykkir að vera á þessum stöðum.
18. mars 2008 klukkan 19:20
10
Sammi skrifar:
Mér líst nú bara alveg temmilega á þetta allt saman...
23. mars 2008 klukkan 04:04
11
Birgitta Elín skrifar:
Já en er ekki áfengi og matur bara undir hverjum og einum komið? Reyna að hafa þetta bara ódýrt og skemmtilegt. Er ekki bara málið að grilla svona undir berum sumarhimninum og allir mæta með sinn mat og drykki. Það verður einhver að taka afstöðu ef það á að gera eitthvað. öðruvísi verður ekkert úr þessu. Það geta allir tekið þátt í þessu og hjálpast að. Málið er líka að plana ekki of mikið, heldur láta verða að hlutunum.
;) Það er minna mál að sjá um e-h dagskrá bara reyna að hafa gaman að þessu
;) Það er minna mál að sjá um e-h dagskrá bara reyna að hafa gaman að þessu
28. mars 2008 klukkan 15:25
Ég er boðin og búin til að aðstoða við skipulagningu. Þannig að þá vantar bara 2-3 :)