Aðalvalmynd

Klukkan

Könnun

Ætlar þú að mæta á hittinginn!!!

Árgangur 1984

Aron Örn
Birgir
Birgitta Elín
Birgitta K.
Elli Bjössi
Davíð
Eva Maren
Ingunn Lára
Haukur
Jón Bryngeir
Jón Hallur
Katrín
Kristín Guðný
Kristján
Maríanna
Óttar
Rúnar
Rögnvaldur
Sammi
Sara
Sara Jakobs
Sigríður Maggý
Sigurbjörg
Símon
Sófus
Steinunn
Steinþór
Svala
Sævar
Tinna

Allir hressirVíkarar

Jæja nú hef ég séð og heyrt að það virðist vera mikill áhugi á hittingi í sumar. Í boði er markaðsdagurinn og sjómannadagurinn og eins og þið vitið er könnun hér til hliðar sem gott væri að allir myndu svara sem eiga leið hér hjá:) Svo er spurning eins og Svala sagði, hvort það sé ekki stemming fyrir hesthúsunum góðu það er engin hittingur hjá okkur nema að það sé hehe..?? En svo er spurning með það hverja við ætlum að hafa á þessum hittingi, spurning hvort það verði við öll eða bara við sem fermdumst, ég get ekki sett inn tvær kannanir svo það þarf að koma fram í kommentum.

Er ekki einhver sem vill taka að sér að sjá um þetta frá A til nokkurnvegin Ö og fá einhvern eða skipa einhverjum fyrir til aðstoðar?? Þetta er gott boð...!! Fyrstur kemur fyrstur fær:)

En já gott að sjá hvað margir hafa kíkt við, verum dugleg að segja frá henni, ég hef ekki náð í alla..:(

Hef það ekki lengra kv. Inga Lára Klára

Athugasemdir

1
Óttar skrifar:
Lítill fugl sagði mér að Aron væri spenntur fyrir því að sjá um þetta..
13. desember 2007 klukkan 23:45
2
Aron Örn skrifar:
Hvar er þessi litli fugl? Ég ætla að skjóta hann.... En ég segi að það sé skemmtilegra að hafa bara alla sem voru með okkur í bekk, það er stemmari....

Hver er til í að gera lista yfir alla sem voru með okkur í bekk svona sirka eftir 2-3 bekk til að hafa hér til hliðar á síðunni?

Lítill Þröstur hvíslaði að mér að Óttar væri spenntur fyrir að sjá um það...
14. desember 2007 klukkan 16:49
3
Óttar skrifar:
Djöfulsins Þröstur..
14. desember 2007 klukkan 23:23
4
Inga Lára skrifar:
Aron, Birgir, Birgitta Elín, Birgitta K. Björn, Davíð, Eva María, ég, Jón Hallur, Katrín, Kristján, Maríanna, Óttar, Rúnar, Rögnvaldur, Sammi, Sara, Sigurbjörg, Símon, Sófus?, Steinþór, Svala, Sævar og Tinna.

Ég svo að gleyma einhverjum en ég bara man ekki hver það er..?? Er þetta ekki svona nokkurnvegin listinn?? Set hann svo til hliðar þegar grænt ljós hefur komið:)
15. desember 2007 klukkan 00:02
5
Hún heitir nú Eva Maren;) gleymdir steinunni, Kristín Guðný var með okkur í 1-4 bekk.. man ekki meir
15. desember 2007 klukkan 00:40
6
Óttar skrifar:
Ég vil allavega bjóða Sófusi. Hann var gull af manni..
15. desember 2007 klukkan 00:47
7
Inga Lára skrifar:
Inga LáraVá er ég alveg dáin auðvitað gleymdi ég þeim.. takk já Eva Maren úfff ég er náttla ekki í lagi hehe Ég var búin að láta Steinunni vita..
15. desember 2007 klukkan 01:21
8
Inga Lára skrifar:
Inga LáraOg ég gleymdi Hauki
15. desember 2007 klukkan 01:33
9
Aron Örn skrifar:
Sara Jakobs, Jón Bryngeir? Svo er verið að gleyma Siggu Maggý....
15. desember 2007 klukkan 01:35
10
Aron Örn skrifar:
Þess má geta að ég er búinn að setja inn 5 skemmtilegar myndir á síðuna. Þær eru reyndar mjög óskýrar en líka MJÖG skemmtilegar.... Ég hvet alla sem eiga myndir úr grunnskólanum að setja þær inn....
15. desember 2007 klukkan 01:55
11
Inga Lára skrifar:
Inga LáraEigum við að ræða það hvað ég gleymdi mörgum..??

En Aron þetta er skemmtilegt, endilega meira svona:)
15. desember 2007 klukkan 02:02
12
Sammi skrifar:
Svei mér þá, ég er bara ekki frá því að maður sé bara glæsilegur þarna. Jafnvel stórglæsilegur!!!
15. desember 2007 klukkan 02:06
13
haha, flottar myndir;)
15. desember 2007 klukkan 14:16
14
Inga Lára skrifar:
Mér sýnist á þessu að keppni sé á milli Óttars og Arons um að fá að sjá um þetta, strákar takið þið þetta ekki bara báðir??
15. desember 2007 klukkan 19:10
15
Birgitta K. skrifar:
Hæhæ. Mér líst rosa vel á þennan hitting og er glöð að fá að koma með :)
Það skiptir mig ekki máli hvort hann verður á sjómannadaginn eða markaðsdaginn

Ég er nú ekki til í að sjá um þetta frá A-Ö, (skólinn og vinnan), en ég er fús til að AÐSTOÐA við skipulagningu. Hvað segirðu Aron, á ég að hjálpa þér við skipulagninguna ? ;)
07. janúar 2008 klukkan 10:46
16
Aron Örn skrifar:
Hehe, hjálpa mér? ;) Ég get svosem alveg séð um eitthvað en mér skilst þó á Óttari að hann sé alveg æstur í að fá að sjá um þetta....
23. janúar 2008 klukkan 14:02
17
Birgitta K. skrifar:
Hehehe
Sjáið þið tveir ekki bara um þetta í sameiningu og ég hjálpa :)
25. janúar 2008 klukkan 08:55
18
Hurru ég á nú helling af myndum... Hvernig set ég þær inn???
24. febrúar 2008 klukkan 23:21

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Bekkurinn

Myspeisin okkar

Börnin í bekknum