vikarar84.bloggar.is
Fyrsta bloggVíkarar
Hæ hæ,Í maí og júní á næsta ári nánar tiltekið 31. maí og 1. júní. verða liðin 10 ár síðan við fermdumst. Þá ætti að vera komin tími til fyrir okkur að hittast og gera okkur glaðan dag.
Nú er bara spurning um að nota þessa síðu til að koma með hugmyndir og einnig til að sýna hvort það sé einhver áhugi fyrir hittingi??
Hvað finnst ykkur um það??:)
Kv. Inga Lára
P.s þið þurfið að vera dugleg að láta síðuna berast á milli hjá okkur:)
Og eitt enn, þið getið öll fengið aðgang hér inn, bara senda mail á ingababe@hotmail.com eða sms og ég get sent ykkur notendanafnið og lykilorðið, en ég þarf alltaf að vita e-mail hjá ykkur:)
Og... bara eitt ogguponsu meira, gefið endilega upp heimasíðurnar ykkar ef þið eruð með:)
Nú er ég hætt.. í bili...
Athugasemdir
1
Birgitta Elín skrifar:
Lýst æðislega vel á þetta :) Góð hugmynd hjá þér stelpa og ekki vitlaust að fara að hóa liðið saman líka þau tvö sem fermdust 1.júní ;) Ég er mikið til í að láta reyna á þetta.
10. desember 2007 klukkan 19:42
2
Svala skrifar:
Ég mæli með því að við skipuleggjum hitting annaðhvort á Sjómannadag eða um Markaðshelgina. Þessa báða daga er ýmislegt um að vera hérna í Bolungarvík.
Mér finnst við verða að gera þatta í sumar!!! :)
Mér finnst við verða að gera þatta í sumar!!! :)
10. desember 2007 klukkan 19:55
3
Aron Örn skrifar:
Jebb, þetta er snilld.... Ég er sammála Svölu um að reyna að hittast á sjómannadaginn eða markaðshelgina... Ég er jafnvel aðeins meira heitur fyrir sjómannadeginum...
10. desember 2007 klukkan 19:57
4
Aron Örn skrifar:
En eitt....? Erum við bara að tala um þá sem fermdust? Eða bara alla sem voru með okkur í bekk, t.d. Birgitta K. og Maríanna og fleiri?
10. desember 2007 klukkan 19:59
5
Sammi skrifar:
Já það væri elger snilld að fara að skella á þetta! Ég er spenntur
10. desember 2007 klukkan 20:03
6
Inga Lára skrifar:
Aron - bara eins og þið viljið, bæði betra:)
10. desember 2007 klukkan 20:05
7
Svala skrifar:
Það er spurning? Ef þetta er fermingarhittingur, meigum við Elli Bjössi þá mætta, ekki það við gætum nú örugglega haldið mjög gott partý bara tvö :). Svo ef þetta er bekkjarhittingur á þá að leita uppi krakka sem voru með okkur í 1 og 2 bekk osfrv.?
10. desember 2007 klukkan 20:08
8
Aron Örn skrifar:
Ég segi að við höldum bara almennan bekkjarhitting.... Við förum kannski ekki í 1. og 2. bekk, efast um að Sófus og Gylfi myndu mæta ;)
10. desember 2007 klukkan 20:11
9
Svala skrifar:
Á Sjómannadaginn er ýmislegt um að vera hérna og við gætum farið á sjómannadagsmatinn og ballið. En reyndar er oft ennþá kalt úti þá! Ekki það að maður sé nokkurn tímann öruggur með veðrið. Svo er Markaðsdagurinn alltaf að verða stærri hérna og þá er örugglega líka gott ball. Er ekki hægt að setja upp skoðanakönnun á þessa síðu?
Haldiði að það sé stemning fyrir því að mæta í félagsheimili hestamanna í Bolungarvík :)!!!
Haldiði að það sé stemning fyrir því að mæta í félagsheimili hestamanna í Bolungarvík :)!!!
10. desember 2007 klukkan 20:19
10
Birgir Olgeirsson skrifar:
Flott. Setjum upp könnun varðandi þessa daga. Annars yrði ég bara sáttur við annað hvorn daginn.
Erum við ekki bara að tala um krakkana sem voru í bekknum árið sem við fermdust?
Annars eru allir velkomnir
Erum við ekki bara að tala um krakkana sem voru í bekknum árið sem við fermdust?
Annars eru allir velkomnir
10. desember 2007 klukkan 20:35
11
Sigurbjörg Hallgrímsdóttir skrifar:
Ég er game, algjörlega komin tími á hitting.. Ég er opin bæði fyrir sjómanna- og markaðshelgi, sammála svölu um skoðanakönnun..
10. desember 2007 klukkan 20:40
12
Simon Young skrifar:
hehe Sófus og Gylfi....:) Það verður enginn hittingur án þeirra....en annars lýst mér vel á báða dagana...
10. desember 2007 klukkan 21:36
13
Birgir Olgeirsson skrifar:
hver er gylfi?
11. desember 2007 klukkan 00:06
14
Sammi skrifar:
Hann átti heima í sama húsi og Jónas kennari og Steinþór áttu heima í. Ég man eftir því að hann kastaði einhvern tíman pílu í síðuna á Atla Frey þegar við vorum að leika okkur eitthvað... Fyndið!
11. desember 2007 klukkan 00:18
15
Inga Lára skrifar:
Eins og þið væntanlega sjáið þá er komin inn könnunin og um að gera að vera duglegur að svara henni:) Ég er svo að setja inn linka á fullu, kemur allt saman..
Ég held að það væri miklu auðveldara að hafa bara okkur fermingarliðið saman, annar er mér alveg sama..
Var ekki Gylfi með ykkur í 2. bekk árið sem ég flutti og var svo farin í 3ja bekk þegar ég kom til baka??
Ég held að það væri miklu auðveldara að hafa bara okkur fermingarliðið saman, annar er mér alveg sama..
Var ekki Gylfi með ykkur í 2. bekk árið sem ég flutti og var svo farin í 3ja bekk þegar ég kom til baka??
11. desember 2007 klukkan 00:21
16
Birgir Olgeirsson skrifar:
Já verðum við þá ekki að bjóða steinþóri? hehe
11. desember 2007 klukkan 00:28
17
Kata skrifar:
Hæ hæ já mér líst ótrúlega vel á hitting, og er alveg sama hvorn daginn það er. Ég held að það væri tilvalið að Svala mundi halda partí heima hjá pabba sínum til að rifja upp góða tíma hehe
11. desember 2007 klukkan 19:14